Árangur vopnavalds?

Punktar

Robert Kuttner segir í Boston Globe, að ekki sé allt sem sýnist í Miðausturlöndum. Þrátt fyrir kosningar til sveitarstjórna sé Sádi-Arabía sama harðstjórnarríkið og áður og bandamaður Bandaríkjanna. Viðræður Ísraela og Palestínumanna byggist á andláti Jasser Arafat og hafi ekkert með Bandaríkin að gera. Miðausturlönd séu sama eldfjallið og þau hafi hingað til verið, reiðibúið að springa vegna óbeitar almennings á Bandaríkjunum og á stuðningi þeirra við ógeðfellda valdhafa. Hann segir hægfara þrýsting betri en vopnavald til að knýja fram lýðræði.