Íslenzka ríkisstjórnin hefur látið hafa sig að fífli í viðræðum um landhelgismál við brezka ráðamenn. Hún er búin að láta Breta teyma sig út í tilboð um 65.000 tonna ársafla og þar af 55.000 tonn af þorski. Ef þessar tölur eru bornar saman við 11O.000 tonna tilboð Breta, koma út sem meðallagstölur 85.000- 90.000 tonn. Er það útkoman, sem íslenzka stjórnin stefnír að?
Hér heima hefur ríkisstjórnin engan stuðning við 65.000 tonna samning og hvað þá við einhverja samkomulagstölu þar fyrir ofan. Enda fær ríkisstjórnin væntanlega að heyra það á næstunni, að Íslendingar kunna illa að meta linkind hennar i viðræðunum við Breta. Þess verður krafizt og það með fullum rétti, að rikisstjórnin falli frá hinu fáránlega 65.000 tonna tilboði.
Ríkisstjórnin getur ekki verið svo sambandslaus við þjóðina, að hún átti sig ekki á, hve ísinn er háll. Hvaða tilgangi þjónar yfirlýsing um áframhaldandi viðræðuvilja? Hún herðir bara Breta. Í rauninni eru viðræðurnar komnar á leiðarenda að sinni, þar sem tilboð íslenzku rikísstjórnarinnar er komið upp fyrir það, sem þjóðin er fús til að þola henni.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið