Anna kann ekki að semja

Punktar

Flestir, sem til þekkja, segja mér það sama: Anna Stefánsdóttir er ófær um að semja við óþæga hjúkrunarfræðinga. Hún getur skipað fyrir, en hún getur ekki samið við nokkurn mann. Svo fór, því að Guðlaugur Þórðarson ráðherra hjó hausinn af stofnuninni án þess að setja henni nýjan haus. Stjórar tóku við verkefnum, sem þeir réðu ekki við. Afleiðingin er sú, að í næstu viku verður neyðarástand á sumum deildum Landspítalans. Ekki verður hægt að sinna brýnum aðgerðum. Guðlaugi er kannski sama um, að ríkisfyrirtæki rambi fram af nöfinni. Veit samt, að honum, en ekki Önnu, verður kennt um ófarirnar.