Andóf í bankahverfum Bandaríkjanna magnast stig af stigi, þótt fjölmiðlar reyni að þagga það í hel. New York Times tókst ekki að halda andófinu í Wall Street leyndu. Sorpritið eyðilagði bara eigið orðspor. Andófið verður sífellt fjölmennara og hefur breiðst út til sjötíu borga og sexhundruð bæja. Andófsmenn nota aðferðir Harðar Torfasonar, engar óeirðir heldur glaðværar uppákomur. Margir eru í hópi ört stækkandi hópi atvinnulausra og hafa tíma til að tjalda á torgum. Þeir andmæla heljartökum banka á stjórnmálunum og óseðjandi græðgi ríkra. Og vel klæddir meðaljónar eru farnir að taka þátt.