Álverin, orkuverin, kreppan

Punktar

Á Íslandi heyrist sú skoðun, að náttúruvernd verði að víkja fyrir aðgerðum gegn kreppu. Þegar harðni á dalnum, þurfum við fleiri orkuver og álver. Í samræmi við kenningu Andra Snæs rithöfundar um, að Íslendingar séu hrædd þjóð. Óttist stöðugt, að sultur sé á næsta leiti, samanber Árna Johnsen. Kreppan hefur samt ekki þessi áhrif, heldur vekur hún okkur til meðvitundar um forgengileika olíunnar. Með síhækkandi olíuverði áttar fólk sig á, að olía er deyjandi orkugjafi. Við þurfum að nota rafmagnið til að knýja bíla, skip, lestir. Eftir tíu ár byrjum við að loka fyrirhuguðum álverum.