“Deloitte er alþjóðlegt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki og niðurstöður þess fást ekki keyptar.” Mikið hló ég, þegar ég las þessa yfirlýsingu frá Deloitte í gær. Minnir mig á yfirlýsingu PriceWaterhouseCooper um daginn, að það endurskoðunarfyrirtæki fari eftir alþjóðlegum stöðlum. Orðið alþjóðlegur á að sveipa excel-rugl í dulrænan og fjarrænan búning. Við höfum fengið upp í kok af lykilorðinu “alþjóðlegt” í endurskoðun. Studdi bókhaldsfals gömlu bankanna og ruglaði saman endurskoðun og ráðgjöf í úthaf spillingar. Munið svo, hvernig fór fyrir alþjóðlegu Andersen endurskoðuninni í Enron-málinu.
