Alþjóða glæpasjóðurinn

Punktar

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn lánar glæpakóngum og heimtar, að fátækar þjóðir endurgreiði lánin. Sjóðnum finnst, að laun eigi að vera lág. Hann lánar til geigvænlegra umhverfisslysa. Honum finnst verzlun vera öllu æðri. Honum finnst réttlæti engu máli skipta. Gegnsæi er eitur í beinum hans, allt fer þar fram fyrir luktum dyrum. Hann hefur víða valdið rosalegum hörmungum. Í stuttu máli er glæpasjóðurinn grein á meiði sértrúarflokks Chicago-skólans í hagfræði. Evrópska efnahagssvæðið hefur sömu sértrúarbrögð. Báðar þessar stofnanir eru andvígar Íbúðalánasjóði, því að hann er mannúðlega hugsaður.