Alþingi verndar spillinguna

Punktar

Framsóknarflokkurinn er stærsti flokkurinn á þingi, þegar á reynir. Felldi með miklum meirihluta, að samkeppnislög næðu yfir sölu mjólkurafurða. 30 þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna felldu þessa sjálfsögðu breytingu. Aðeins Samfylkingin studdi hana, það voru 19 þingmenn. Hreyfingin sat hjá, neytendur eiga þar enga vörn. Sölufélög landbúnaðarins hafa löngum haft forustu um einokun og í samráði um verð. Á því verður engin breyting. Mikill meirihluti Alþingis staðfesti, að siðferði mætti ekki ná til sölu á búvöru. Fjórir flokkar stóðu vörð um þessa séríslenzku spillingu.