Alþingi er kauphöll. Þar eru stunduð vöruskipti. Sjálfstæðisflokkurinn mun styðja nýja IceSave samninginn gegn því að ríkisstjórnin falli frá fyrningu aflakvóta. Því er fyrning aflakvóta frosin í stjórninni. Hún varðveitir skiptivöruna til að kaupa stuðning Sjálfstæðisflokksins við IceSave. Með stuðningi flokksins, sem framleiddi IceSave á sínum tíma, fæst eindreginn meirihluti fjórflokksins. Þá mun hinn tækifærissinnaði forseti á Bessastöðum ekki leggja í þjóðaratkvæði. Þetta er Alþingi Íslendinga í dag, siðblindur helgidómur víxlara. Þar liggja frammi tilboð, sem ekki er hægt að hafna.