Almenningur í súpunni

Punktar

Ekki þarf mikið til að gera efnahagsástandið bærilegt hér á landi. Semja þarf um kaup og kjör í evrum, það er stóra málið. Um leið þarf að liðka fyrir krítarkorta-reikningum í evrum. Þá er almenningur tilbúinn. Fyrirtæki bjarga sér með því að færa sig í evrur. Ef menn þurfa að fara í bakarí eða fiskbúð, geta þeir fengið krónur í hraðbanka. Krónan passar vel í slíka stærðargráðu. Sérfræðingar vilja ekki, að þetta gerist svona. Það dregur nefnilega úr getu fjármálafyrirtækja til að krækja í gengishagnað á kostnað fólks. Ríkiisstjórnin á ekki að skilja almenning eftir í súpunni.