Aðeins 23% af hvalveiðiafla Íslands árin 2009 og 2010 skilaði sér til útflutnings. Og aðeins 5% komst á leiðarenda. Þar af hafa 0% selzt í Japan. Um aðra markaði er ekki að ræða. Þetta er feiknarleg rýrnun, sem bendir til, að brögð séu í tafli. Hvar eru þau 77%, sem aldrei fóru úr landi? Það hlýtur að vera feiknarlegt kjötfjall. Og hvað eru þau 95%, sem aldrei komu fram í viðskiptalandinu? Fór mismunurinn í sjóinn? Eða er hann í gámum í fríhöfn? Það hlýtur að vera geigvænlegur gámahaugur. Og hvers vegna er ekkert selt af því eina prósenti, sem skilar sér á leiðarenda? Og hver borgar vitleysuna?