Alls enga utanþingsstjórn

Punktar

Tunnumótmæli eru fín, en krafa um utanþingsstjórn hæfir ekki. Við höfum að vísu lélega ríkisstjórn, en hún er ekki beinlínis vond eins og þær fyrri voru. Henni tókst að verja stöðu tekjulægstu heimilanna. Þau hafa svipuð lífskjör og þau höfðu fyrir þremur árum. Eftir hrun er það bara kraftaverk. Sérstakar kringumstæður ofurskulda valda vandræðum hjá broti hópsins. Linast með lyklalögum og gjaldþrotalögum. Kröfur um frekari úrræði eru út í hött. Kominn er tími til, að venjulegt fólk spyrni við fótum og hafni enn frekari byrðum á skattgreiðendur komandi ára. Hávaðafólkið má ekki stjórna ríkinu.