Ríkisstjórnin er að veðsetja ykkur öll, börn ykkar og barnabörn. Allt sem kemur inn í kassann, verður látið renna til Bretlands. Þetta er skilyrði Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Hann vill að við borgum Bretum meira en sem nemur lagalegri skyldu okkar. Hann þjónustar Gordon Brown, sem er stóri karlinn. Brown er þegar kominn með klær í útflutningstekjur útgerðarinnar. Ekkert verður aflögu til að laga stöðu ykkar. Árum saman. Í heilan áratug. Lengur. Það er aðferð Sjóðsins. Ríkisstjórnin þorir ekki að segja ykkur frá því. Vestrænt samstarf hefur gersamlega brugðizt þessari heimskustu þjóð.
