Allir eru þeir eins

Greinar

Jafnan er athyglisvert að sjá nýjar sannanir hins gamla spakmælis, að því meira sem hlutirnir breytast, þeim mun meira eru þeir eins. Við höfum nýlegt dæmi um, að ráðherrar eru alltaf eins, þótt þeir séu að koma og fara.

Eitt fyrsta verk hins nýja orkuráðherra var að reyna að tefja virkjun Hrauneyjarfoss og koma inn á milli virkjun Bessastaðaár á Austurlandi. Stendur hann nú í töluverðu þjarki við Landsvirkjun um að fá þessu hugsjónamáli framgengt.

Allir ráðherrar eiga sínar Borgarfjarðarbrýr, mismunandi vafasamar. Orkuver við Bessastaðaá getur meira að segja verið tiltölulega hagkvæmt. En kjarni málsins er samt sá, að orkuráðherrann heitir Hjörleifur Guttormsson og er þingmaður Austurlands.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið