Allir andvígir sannleikanum

Punktar

Christine Lagarde er ljósið í evrópska myrkrinu. Segir bankana þjást af eiginfjárskorti. Allir aðrir segja bankana þjást af lausafjárskorti. Hún ein sér, að bankakerfið er helsjúkt af spilavítishyggju frjálshyggjunnar. Sér að evrópskir bankar stefna beint í aðra kreppu. Sem byggist á því, að ímyndaðir peningar séu á hringrás í bankakerfinu. Hún segir, að bankar þurfi að byggja tilvist sína á sterkri eiginfjárstöðu fremur en aðgangi að hverfulu lánsfé. Enda er út í hött, að lykilstofnanir fjármála lifi frá degi til dags á endurfjármögnun gjaldfallinna skulda. Lagarde ein hefur rétt fyrir sér.