Íslenzkir fjölmiðlar ljúga hver um annan þveran, að álið sé að fara fram úr fiskinum í þjóðarbúskap Íslendinga. Þeir gleyma að draga frá kostnaðinn af innfluttu hráefni, báxíti. Fiskurinn er hins vegar ekki innflutt hráefni. Fávísir fjölmiðlungar birtu bara plústölur, ekki mínustölur. Þeir lugu með því að birta fréttatilkynningar hráar í stað þess að kanna málið sjálfir. Þannig breytast fjölmiðlarnir í ruslakistu fyrir blekkingar í tilkynningum spunakarla. Fáfróðir fjölmiðlar enduróma lygina um, að álið sé fjárhagslegt jafngildi fiskjar í þjóðarbúskapnum. Álið verður seint jafngildi fiskjar.
