Áhyggjur af Þórhildi

Punktar

Fréttablaðið hefur í dag forsíðu-áhyggjur af fyrirhugðu banni við lendingu herflugvéla á Reykjavíkurflugvelli. Þórhildur Danadrottning geti ekki lent í Reykjavík, né þyrlur danska sjóhersins. Samkvæmt ný-íslenzkri blaðamennsku talar blaðið bara við annan málsaðila, ekki hinn. Vafalaust hefði blaðið með gamaldags blaðamennsku komizt að raun um, að undanþágur væri hægt að veita. Leyfa má grobb-flugvélum þjóðhöfðingja að lenda í Reykjavík, svo og danska sjóhernum. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma að óska eftir banni stjórnvalda við hernaðarflugi í Reykjavík og það skiptir mig og fleiri máli.