Áhugaleysi á Evrópuaðild

Punktar

Enginn íslenzkur blaðamaður var á fundinum, þegar Evrópa samþykkti viðræður um aðild Íslands. Segir mikið um áhuga þjóðarinnar á aðildinni. Ýmsir hafa erlendis tekið eftir skorti á fagnaðarlátum á Austurvelli. Í fyrsta skipti er ekki fagnað, þegar ríki fær samþykktar viðræður um aðild. Áhugi okkar á henni hefur löngum verið lítill og farið ört minnkandi í IceSave deilunni. Umsóknin um aðild var bara formsatriði til að koma á fót ríkisstjórn. Síðan hefur ferðin verið bara á vegum Samfylkingarinnar og utanríkisráðuneytisins. Alþýða manna er ekki með í þeirri undarlegu gervi-ferð og mun fella aðild.