Bezti staður borgarinnar er fjölskyldu- og húsdýra- og grasagarðurinn í Laugardal. Þangað fer ég með afastrákana og útlendingana. Sá síðasti tók 96 ljósmyndir í grasgarðinum einum. Þetta er einstök vin í samfélaginu á sumrin. Fólk gengur um garða án þess að verða á neinn hátt vart við ys og mannvirki borgarinnar í kring. Garðarnir eru hins vegar allt of litlir og húsakostur dýragarðsins fátæklegur. Þess vegna þarf að taka frá land alveg suður að Suðurlandsbraut og Grensásvegi og norður að Laugarásvegi. Annars ná ágjarnir aðilar auðum svæðum undir íþróttamannvirki og Laugardalshallir.
