Valdajafnvægi hefur snögglega breytzt í Evrópu. Rússland gerist ósvífnara á fjölþjóðlegum vettvangi. Það er stefna Vladimír Pútíns. Hefur meðal annars margsinnis sent herþotur án leyfis í lofthelgi okkar. Í ljósi þessa ágangs þarf ég að endurskoða fyrri skoðun mína um gagnsleysi Nató. Við getum ekki sagt skilið við bandalagið meðan Rússland sýnir klærnar. Einnig er ástæða til að fagna frönsku flugsveitinni, sem hyggst verja landið næstu vikur. Við þurfum að vera í Nató til að fá hjálp gegn Rússum. Og kannski hættir bandalagið að reka stríð í öðrum álfum og snýr sér aftur að vörnum Evrópu.
