Ágætiseinkunn fallista

Punktar

Í skoðanakönnun gáfu kjósendur ráðherrunum falleinkunn, öllum nema Jóhönnu Sigurðardóttur. Í annarri könnun gáfu kjósendur ríkisstjórninni hins vegar ágætiseinkunn, svipaðar tölur og í kosningunum. Þetta voru alvöru kannanir, ekki atkvæðagreiðslur á vefnum. Hvernig geta margir mínusar gert einn plús? Það byggist á, að ekkert er að marka kannanir. Íslendingar svara út í hött og segja örugglega ekki satt. Sannleikur er bara eitt af mörgum tækjum í samskiptatækni þjóðarinnar. Okkur er öllum hollt að umgangast niðurstöður skoðanakannana með varúð. Láta þær ekki segja skoðunum okkar fyrir verkum.