Deilt er um, hvort viðræður Íslands og Evrópusambandsins séu aðildarviðræður eða aðlögunarviðræður. Andstæðingar Evrópuaðildar kvarta yfir, að Ísland sé neytt til að laga stjórnsýslu sína að Evrópu. Er þar sérstaklega nefnt frægt ráðuneyti landbúnaðar og sjávarútvegs. Evrópa vill fá að tala við faglega stofnun, sem hefur sýn yfir styrki og greiðslur, svo og sjálfstæða vottun. Því er ekki til að dreifa, því að stjórnsýslan hefur færzt yfir í samtök á borð við Bændasamtökin. Ráðuneytið annast fyrst og fremst sérhagsmunagæzlu. Því er hvort tveggja rangt að tala um aðildar- og aðlögunarviðræður. Þetta eru afvötnunarviðræður. Lilja og folöldin eru andvíg afvötnunarviðræðum.