Afrita ekki verðmæti

Punktar

Annað veifið lesum við fréttir af fólki, sem glatar langri vinnu, af því að það afritar ekki tölvugögn. Nú eru flestar fartölvur með diskabrennurum, sem gera afritun gagna mjög fljótlega. Samt afrita menn ekki og fara þar á ofan með þessar léttu og handhægu tölvur inn á kaffihús og bari eða skilja eftir í bílum sínum. Hvort tveggja er ávísun á þjófnað. Ef menn meta vinnu sína einhvers, er brýnt að passa hana. Fréttir DV af slíkum atburðum eiga að vera fólki brýn skilaboð um að fara að lágmarkskröfum um öryggi. Afritun gagna kostar yfirleitt aðeins fáar mínútur hverju sinni.