Bókhaldstæknar streitast við afneita lykilaðild sinni að hruninu. Nota 75 ára afmæli félags endurskoðenda til að ítreka sakleysi sitt. Staðlar og regluverk brugðust, segja þeir. Og eiga þá við, að kerfið hafi ekki gert sitt til að hefta græðgi þeirra. Segja stjarnfræðilegt mat bókhaldstækna á viðskiptavild hafa verið réttmætt fyrir hrun. Matið var samt alltaf froða, með eða án hruns. Loka augunum fyrir undirskrift bókhaldstækna undir öllum glæpum skólabókarinnar að hætti Enron. Störfum heillar stéttar var verulega ábótavant. Og furðulegt er, að KPMG og PWC skuli fá að starfa hér áfram.
