Mér féll allur ketill í eld, þegar ég las tilvitnun í Bjarna Benediktsson. Hann segir um Jóhönnu Sigurðardóttur: “Hún hefur ekkert lært”. Úr munni Bjarna er þetta einum of gróft. Hann er einn helzti afneitari þjóðarinnar um þessar mundir. Var þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins í hruninu og ber þunga ábyrgð á því. Hann er maðurinn, sem hefur ekkert lært. Furðulegt er, að álitsgjafar í skoðanakönnunum skuli styðja mann, er hefur ekkert lært. Og sem heldur meira að segja fram, að Jóhanna hafi valdið hruninu. Þeirri þjóð er ekki viðbjargandi, sem leyfir Bjarna að komast upp með grófustu afneitun.