Afnám ranglætis

Greinar

Mörg dæmi eru um, að blásaklaust fólk verður illa fyrir barðinu á ranglátum lögum um fasteignamat og sambýli í fjölbýlishúsum. Ef eigandi einnar íbúðar í fjölbýlishúsi greiðir ekki opinber gjöld af íbúðinni, eru allir hinir samábyrgir og verða að borga fyrir hann, ef þeir vilja komast hjá því, að íbúðir sínar verði auglýstar á uppboði. Þar á ofan komast nöfn sumra þeirra í Lögbirtingablaðið og aðra fjölmiðla undir stimpli vanskilamanna.

Eggert G. Þorsteinsson alþingismaður hefur flutt þarfa tillögu á alþingi um afnám þessa ranglætis. Vill hann láta meta hverja íbúð sem sérstaka einingu og að tryggt sé, að ekki séu aðrar íbúðir auglýstar til uppboðs eða aðfarar vegna vangoldinna gjalda en þær, sem í skuld eru hverju sinni.

Jónas Kristjánsson

Vísir