Áfengi hellt í Nílarfljót

Punktar

Kaíró hefur verið heimsborg í heila öld. Nú skýtur skuggi trúarofstækis þar rótum. Almenningur bætir vantraust á stjórnvöldum upp með trú á spámanninn. Afturhaldssamir Sádar hafa fjárfest í Kaíró og sett nýjar reglur. Hyatt hótelið hefur hellt áfengisbirgðum sínum í Nílarfljót. Abdel Aziz Ibrahim greifi og fjárfestir segir íslömsk gildi skulu ráða í íslömskum ríkjum. Það er alveg rétt, í Róm haga menn sér eins og Rómverjar. En ferðabransinn mun líða fyrir ofstækið. Hyatt hefur tapað stjörnum á skalanum. Ferðamenn munu halla sér að ríkjum, þar sem þeim mun líða vel. Talíbanar trekkja ekki.