Áfallahjálp ráðherra

Punktar

Ykkur hefur verið veitt áfallahjálp síðustu viku. Daglega hafa ráðherrar stigið á stokk og rakið, hvernig þeir ætli að passa ykkur. Gæta þess, að þið verðið ekki atvinnulaus. Passa, að erlendar skuldir ykkar setji ykkur ekki á hausinn. Lengja í skuldum ykkar. Vernda innistæður ykkar í bönkum, jafnvel eitthvað af eignum ykkar í markaðssjóðum. Ekki er til sá vandi, að Björgvin Sigurðsson ætli ekki að leysa hann. Allt er þetta tóm lygi. Ráðherrarnir veita ykkur áfallahjálp, svo að þið farið ekki út á torg og veltið ekki ríkisstjórninni frá völdum. Ég þekki þennan skrípaleik.