Samningurinn um IceSave er fjárkúgun. Að henni standa Evrópusambandið og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn auk Bretlands og Hollands. Norðurlöndin eru stuðningsaðili kúgunarinnar. Þau neituðu að hjálpa, nema Evrópusambandinu og gjaldeyrissjóðnum væri hlýtt. Allir þessir aðilar höfðu samráð um að sliga börn okkar og barnabörn. Aðila, sem ekki komu nálægt IceSave, græddu ekkert á svindli Bjögganna og bankastjóra Landsbankans. Þetta er svívirðilegur og ærulaus samningur, sem fjárkúgararnir vilja ekki, að birtur sé. Vonandi verður fjárkúgunin felld á Alþingi og vonandi verður hún aldrei greidd.