Sífellt berast fréttir af íslenzkum fávitum í gildrum. Þeir telja sig vera að bjarga verðmætum prinsa í Nígeríu. Telja sig hafa unnið í hollenzku happdrætti. Voru þess fullvissir, að bezt væri að setja fé sitt í sjóði, sem sagðir voru gefa 40% arð. Eru alltaf reiðubúnir að láta ljúga að sér, ef monní-monní er í sigti. Þetta tröllheimska lið tók myntkörfulán og lagði féð í hlutabréf og hlutabréfasjóði. Nú snúast stjórnvöld eins og skopparakringlur við að bjarga fjármálum fávitanna. Stjórnvöld eiga að láta fávitana eiga sig. Þeir setja bara styrkinn í nýja Nígeríu-pappíra.