Aðild að gölluðum samtökum

Punktar

Evrópusambandið er stórgallað, raunar hálfgerð glæpasamtök í viðskiptum við útlönd. samanber makríl. Þingið er valdalaust, má ekki semja frumvörp. Þau koma öll frá skriffinnum, sen vita ekki, hvað fólk hugsar. Sambandið lætur greiða atkvæði aftur og aftur, unz niðurstaða er þóknanleg, samanber Írland og Danmörku. Getur ekki lagt fram lögleg reikningsskil, sem endurskoðendur samþykkja. Gegnsósa af spillingu, einkum í landbúnaði, samkvæmt upplýsingum sömu endurskoðenda. Vill nokkur eiga aðild að þessu gallaða ríkjasambandi? Ég vil endilega fá aðild. Ef þú getur ekki sigrað þá, semdu þá bara við þá.