Aðgengilegar tillögur

Greinar

Hannibal Valdimarsson hefur svipt hulunni af einu viðkvæmasta leyndarmáli íslenzkra stjórnvalda, tilboði Bandaríkjastjórnar um framtíðarskipan varna á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt lýsingu Hannibals gengur tilboðið verulega til móts við íslenzkar hugmyndir um endurskoðun varnarsamningsins.

Í tilboðinu er fallizt á, að bandarísku starfsfólki á Keflavikurflugvelli fækki verulega og að Íslendingar taki við störfum þess. Ennfremur er stungið upp á, að allir varnarliðsmenn búi framvegis innan girðingar á Keflavíkurflugvelli. Loks fellst Bandaríkjastjórn á, að alveg verði skilið milli varnarliðsflugsins og almenns flugs undir íslenzkri stjórn og býður aðstoð við byggingu nauðsynlegra mannvirkja í því skyni.

Þessi aðskilnaður er bæði tímabær og framkvæmanlegur. Reisa þarf sérstaka flugstöð fyrir millilandaflugið, eins og lengi hefur verið í ráði.

Þessi flugstöð og vegurinn til hennar þurfa að vera utan varnarliðssvæðisins. Talið er auðvelt að hluta flugvallarsvæðið sundur í þessu skyni. Með þessum hætti getur Keflavíkurflugvöllur gegnt sómasamlega hinu tvíþætta hlutverki sínu.

Samkvæmt tilboðinu telur Bandaríkjastjórn vel koma til greina, að Íslendingar taki að sér umtalsverðan hluta starfanna á vegum varnarliðsins. Þetta er í samræmi við hugmyndir, sem skotið hafa upp kollinum meðal Íslendinga. Varla er raunhæft að ætla, að Íslendingar fari að leggja stund á hermennsku, en reynslan ætti að geta skorið úr um, að hve miklu leyti Íslendingar geta tekið að sér störf Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli.

Búseta varnarliðsmanna utan vallarins hefur leitt til smygls á tollfrjálsum vörum frá flugvellinum. Með flutningi allra bandarískra starfsmanna varnarliðsins inn á sjálft vallarsvæðið ætti þetta vandamál að verða viðráðanlegra. Ekki mundi þó draga úr samskiptum þjóðanna, því að atvinna Íslendinga á vellinum mundi leiða til aukinna samskipta innan vallarsvæðis á móti minnkuðum samskiptum utan þess.

Í heild má segja, að þetta séu gagnlegar og aðgengilegar tillögur. Því miður er ríkisstjórn okkar á öðru máli og telur nauðsynlegt að ganga lengra í átt til varnarleysis. Nefnd nokkurra framsóknarmanna vinnur nú að því að bræða saman hin mörgu sjónarmið í Framsóknarflokknum og Alþýðubandalaginu og finna leið, sem haldið geti stjórninni saman. Þessa leið á svo utanríkisráðherra að hafa í veganestið, næst þegar hann ræðir málið við fulltrúa Bandaríkjastjórnar.

Hætt er við, að úr þessum bræðingi verði sangur grautur, sem fullnægi engan veginn öryggisþörfum Íslendinga. Þeim verður þá fórnað fyrir lengingu lífdaga ríkisstjórnarinnar.

Jónas Kristjánsson

Vísir