Aðdragandi næstu kosninga

Punktar

Senn fer fólk í alvöru að velta fyrir sér alþingiskosningum. Stjórnlagaráð lýkur störfum í sumar og niðurstaðan verður viðfangsefni Alþingis í haust. Sennilega verður kosið um nýja stjórnarskrá í haust. Þar með er hlutverki stjórnarmeirihlutans lokið og ríkisstjórnin verður sjálfdauð. Hún mun tæpast geta leyst annan mikilvægan ágreining, frá kvótagreifum til Evrópusambands. Á þingi situr fólk gamla tímans, sem þarf að fá frí. Við þurfum að kjósa nýja flokka og nýtt fólk. Kannanir sýna, að annars taka hrunverjar aftur við völdum. Jóhanna og Steingrímur eru útbrunnin kerti í vörninni gegn bófunum.