Pólitísk trúgirni Íslendinga skapar markað fyrir bófa, sem búa til kannanir og undirskriftasafnanir eftir þörfum. Liðin er sú tíð, að Fréttablaðið og Gallup höfðu skoðanakannanir, sem fólk gat trúað. Nú eru komnar dularfullar stofnanir, sem heita skrítnum nöfnum. Þær fela í sér að Loftur Altice spyr Hall Hallsson, hversu mörg atkvæði séu á hverjum bás. Síðan sannreynir Hallur, að þetta sé rétt með því að spyrja Loft, hvort allt sé í lagi. Loks segir Altice, að allt sé rétt og staðfest. Íslendingar trúa slíku eins og nýju neti. Ævinlega er auðvelt að plata Jeppa á Fjalli. Eða á Bessastöðum.