Hinn lausmáli þingmaður Sigurður Kári Kristjánsson sagði þetta á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2009: “Vilji Sjálfstæðisflokkurinn halda yfirráðum sínum yfir sjávarútvegsauðlindinni, þá felur það í sér, að flokkurinn vill standa utan Evrópusambandsins og því fagna ég.” Að vísu er ekki ljóst, hvort Flokkurinn á kvótagreifana eða hvort kvótagreifarnir eiga Flokkinn. En ljóst er samhengið milli kvótagreifa og flokks og viðhorfsins til Evrópu. Sigurður er hræddur um, að Evrópusambandið sjái sjúkdóm Íslands, sérhagsmunagæzlu Flokksins gegn þjóðarhagsmunum. Hún er öll ein mafía að hætti Sikileyjar.