Samkvæmt yfirlýsingu PriceWaterhouseCooper bera endurskoðendur þess enga ábyrgð á fölsuðum reikningum Landsbankans. Fyrirtækið neitar ábyrgð á tjóni þjóðfélagsins upp á hundruð milljarða króna. Staðfestir fyrri skoðun mína, að ófært sé að láta endurskoðendur skrifa upp á reikninga. Til þess þurfum við siðfræðinga. Endurskoðendur eru siðlausir og segjast sjálfir líka vera marklausir, þegar þeir standa andspænis tjóninu. Nauðsynlegt er að banna þeim að nota starfsheitið endurskoðendur. Þeir eru bókhaldstæknar. Þeir eru teinar í hjóli taumlausrar gróðafíknar rétt eins og lagatæknar og hagtæknar.