Ábyrgð verkalýðssrekenda

Punktar

Verkalýðsrekendur landsins bera ábyrgð á hruni lífeyrissjóðanna. Þeir hafa þegar tapað 500 milljörðum, sem er sjöfalt IceSave. Samt eiga þeir eftir að bókfæra sumt af tjóninu. Fara sennilega í 700 milljarða tjón, þegar upp er staðið. Skoðanakönnun meðal verkafólks sýnir, að 70% vilja breyta stjórnum lífeyrissjóðanna: Þær verði kosnar af þeim, sem greiða í sjóðina og fá þaðan lífeyri. Ekki af drykkjubandalagi verkalýðsrekenda og atvinnurekenda. Gylfi Arnbjörnsson, kóngur verkalýðsrekenda, og hans menn felldu þessa tillögu. Græðgisliðið stjórnar ennþá lífeyrissjóðunum og er hvergi í óháðri rannsókn.