Furðulegt, en satt. Í miðju atvinnuleysinu eru 620 laus störf, flest á höfuðborgarsvæðinu. Hjá Vinnumálastofnun eru skráð 225 laus störf við sölu og afgreiðslu. Fyrir iðnaðarmenn eru 55 laus störf, fyrir sérfræðinga eru 80 laus störf. Fyrir skrifstofufólk eru 62 laus störf og fyrir ýmiss konar tækna eru 48 laus störf. Í boði eru 116 laus störf fyrir ósérhæfða. Tregða virðist vera í getu kerfisins til að leiða saman fólk og störf. Ef fólki væri útvegað starf fyrr en ella, mundi mikið fé sparast og margir mundu lenda í minni vanda en ella. Í kreppu ættu öll laus störf að fyllast strax.