38.000 króna lífeyrir

Punktar

Lífeyrissjóður verzlunarmanna borgar eftirlaunafólki að meðaltali 38.000 krónur úr sjóðnum á mánuði. 38.000 krónur. Á mánuði. Það samsvarar benzíni fyrir forstjórann. Eftirlaunafólk hefur ekki fengið að njóta ávöxtunar umfram lágmark. Stjórn þessa sjóðs sem annarra sjóða hefur tekið allan umframgróðann til fjárfestingar. Það er ekki tilgangur sjóðanna. Þeir eiga að gera eftirlaunaþegum ævikvöldið áhyggjulaust. Skilningur forhertra stjórnenda er, að það gerist með 38.000 krónum á mánuði! Munduð þið sætta ykkur við 38.000 króna eftirlaun hjá sjóði með tugmilljarða arð á ári?