Þrjátíu-og-sjö fræðingar fara mikinn í gagnrýni á þingmenn fyrir tillögu um takmörkun á útiræktun erfðabreyttra jurta. Fræðingarnir virðast halda, að tillagan snúist um bann við erfðabreyttum jurtum. Bréf þeirra er rustalegt og heimskulegt. Kryddað stóryrðum og sýnir takmarkaða þekkingu á tillögunni. Mér sýnist bréf þeirra vera mjög í stíl við annan málflutning áróðursmanna útiræktunar erfðabreyttra matvæla. Farsælla er að fara varlega í útiræktun og láta náttúruna og mannslíkamann njóta vafans. Margir fræðingar vara við erfðabreytingum. Fávíslegt bréf 37-menninganna ætti að vekja fólk til varna.