Geir Haarde talaði í tuttugu mínútur án þess að víkja einu orði að því, sem stendur til að gera. Enginn var neinu nær um vanda þjóðarinnar eftir allan þvættinginn. Sjónvarpið dró fram Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir til að túlka orð Geirs. Hvað ætlaði Geir að segja, spurði aumingja fréttamaðurinn. Þorgerður gat ekki skýrt það að neinu leyti. Hún sagði bara, að mál Geirs hafi verið frábært. Síðan kom stjórnarandstaðan og útskýrði, að í væntanlegu frumvarpi eigi að auka ýmsar heimildir til aðgerða í bankamálum. Þetta var forkastanleg frammistaða. Og engan veginn traustvekjandi.